Janúar 2011

janúar 2011

(Sleppa dagatali)
L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M
1 2 3 4 5
miðvikudagur
6
fimmtudagur
7
föstudagur
8
laugardagur
9 10 11 12 13
fimmtudagur
14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27
fimmtudagur
28 29 30 31

Tónleikar
sigrun_edvalds_stor
  • 27.1.2011 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.900 kr. / 3.400 kr.
  • Kaupa miða

Myrkir músíkdagar

Á Myrkum músíkdögum verður fjölbreytt efnisskrá að vanda. Daníel Bjarnason stjórnar tónleikunum og semur auk þess

nýtt hljómsveitarverk, en þess er skemmst að minnast þegar Víkingur Heiðar frumflutti píanókonsert hans á Myrkum músíkdögum 2009 við feykigóðar undirtektir. Daníel hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli að undanförnu; hann var tilnefndur til Norrænu tónskáldaverðlaunanna fyrir verkið Bow to String, og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2010, bæði fyrir tónverk ársins og sem höfundur ársins.

Tveir nýir íslenskir konsertar hljóma á tónleikunum. Finnur Torfi Stefánsson, sem m.a. komst í úrslit Masterprize-tónsmíðakeppni Breska ríkisútvarpsins árið 2001, hefur samið fiðlukonsert handa Sigrúnu Eðvaldsdóttur sem nú hljómar í fyrsta sinn. Íslensk-þýska tónskáldið Steingrímur Rohloff lærði tónsmíðar í Köln og París, og hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir verk sín, meðal annars þýsku Bernd Alois Zimmermann-verðlaunin fyrir „melódíska andagift og glæsilega notkun hljómsveitarinnar“.

Atmosphères eftir György Ligeti er löngu orðið eitt af sígildu hljómsveitarverkum 20. aldarinnar. Ekki spillti heldur fyrir þegar Stanley Kubrick notaði það í mynd sína 2001: A Space Odyssey, að sögn af því hann hreifst af tímaleysinu sem verkið gefur í skyn. Verkið er heillandi hljóðmúr, settur saman af ótal tónum sem hljóma á sama tíma og gefa því sérkennilegan, dulúðugan og hrífandi blæ.

  • Stjórnandi
    Daníel Bjarnason
  • Einleikarar
    Rúnar Óskarsson
    Sigrún Eðvaldsdóttir
  • Efnisskrá
    Daníel Bjarnason: Birting
    Steingrímur Rohloff: Klarínettkonsert
    Finnur Torfi Stefánsson: Fiðlukonsert
    György Ligeti: Atmosphères

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica