Janúar 2011

janúar 2011

(Sleppa dagatali)
L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M
1 2 3 4 5
miðvikudagur
6
fimmtudagur
7
föstudagur
8
laugardagur
9 10 11 12 13
fimmtudagur
14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27
fimmtudagur
28 29 30 31

Tónleikar
hanna_dora_kjoll_stor
  • 5.1.2011 19:30
  • Háskólabíó
  • 4.700 kr. / 4.400 kr.
  • 6.1.2011 19:30
  • Háskólabíó
  • 4.700 kr. / 4.400 kr.
  • 7.1.2011 19:30
  • Háskólabíó
  • 4.700 kr. / 4.400 kr.
  • 8.1.2011 17:00
  • Háskólabíó
  • 4.700 kr. / 4.400 kr.
  • Kaupa miða

Vínartónleikar

Vinsælustu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru hinir árlegu Vínartónleikar, enda þarf hvorki fleiri né færri en ferna tónleika til að allir komist að sem vilja. Dansandi flöskutappar, freyðandi kampavín, fallegir kjólar, reisn og glæsileiki eru einkenni Vínartónlistarinnar sem mörgum þykir ómissandi í upphafi árs.

Á Vínartónleikum 2011 hljómar sígild Vínartónlist úr ýmsum áttum. Þar má nefna Kampavínspolkann, Dónárvalsinn sívinsæla og atriði úr Leðurblökunni. Þá verður flutt hljómsveitarsvíta úr óperunni Rósariddarinn eftir Richard Strauss, en fjölmargir Íslendingar sáu hana í uppfærslu Metropolitan-óperunnar í janúar 2010 þar sem Renée Fleming og Kristinn Sigmundsson fóru með aðalhlutverk.

Hanna Dóra Sturludóttir hefur undanfarin ár átt glæsilegan feril við þýsk óperuhús, meðal annars Ríkisóperurnar í Berlín og Hamborg. Hún hefur sungið í mörgum uppfærslum Íslensku óperunnar og hlaut einróma lof fyrir túlkun sína á söguhetjunni í Ariadne auf Naxos haustið 2007. Í Vínartónlist er hún á heimavelli og nú er komið að því að hún hrífi tónleikagesti SÍ með fögrum söng sínum og hrífandi framkomu.

Graeme Jenkins hefur stjórnað 106 ólíkum óperum víðsvegar um heiminn. Hann er aðalstjórnandi Dallas-óperunnar í Bandaríkjunum en hefur einnig komið fram m.a. í Glyndebourne, Covent Garden og Parísaróperunni, og aðstoðað Bernard Haitink og Simon Rattle í uppfærslum þeirra.

 

  • Stjórnandi
    Graeme Jenkins
  • Einsöngvari
    Hanna Dóra Sturludóttir
  • Efnisskrá
    Sígild Vínartónlist úr ýmsum áttum. Þar má nefna Kampavínspolkann, Dónárvalsinn sívinsæla og atriði úr Leðurblökunni. Þá verður flutt hljómsveitarsvíta úr óperunni Rósariddarinn eftir Richard Strauss

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica