Mars 2011

mars 2011

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3 4 5
laugardagur
6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24
fimmtudagur
25
föstudagur
26 27 28 29 30 31

Tónleikar
norn_stor

Nornir og töframenn

Nornir og töframenn taka völdin á þessum fjölskyldutónleikum Sinfóníunnar þar sem kennir margra grasa. Við heyrum í rússnesku norninni Baba Jaga, sem flýgur um á kústskafti og hnuplar börnum, heyrum norskan trölladans úr leikhústónlist Griegs við Pétur Gaut, auk þess sem sjálfur Frankenstein verður sérstakur gestur á tónleikunum.

En það eru líka til góðir töframenn, til dæmis Úranus, en einn kaflinn úr Plánetunum eftir Gustav Holst er einmitt tileinkaður honum. Amor, ástarguðinn, er vitaskuld einnig mikill töframaður og vegir hans eru sannarlega órannsakanlegir. Manuel De Falla samdi skemmtilegan ballett og úr honum leikur Sinfónían hressilegan elddans. Harry Potter er þó líklega eftirlætis töframaður yngstu kynslóðarinnar og hljómsveitin leikur kafla úr áhrifamikilli kvikmyndatónlistinni eftir John Williams.

Valkyrjur eru einnig gæddar töfrum, en í norrænni goðafræði voru það þær sem ákváðu hverjir skyldu falla í bardaga og búa í Valhöll. Tónleikunum lýkur á hinni sívinsælu Valkyrjureið Wagners, þar sem öll hljómsveitin leikur af fullum krafti og lýsir því þegar dætur Óðins fljúga um loftin blá.

 

  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einsöngvari
    Bergþór Pálsson
  • Sögumaður
    Halldóra Geirharðsdóttir

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica