Janúar 2012

janúar 2012

(Sleppa dagatali)
S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ
1 2 3 4 5
fimmtudagur
6
föstudagur
7
laugardagur
8 9 10 11 12
fimmtudagur
13 14 15 16 17 18 19
fimmtudagur
20
föstudagur
21
laugardagur
22 23 24 25 26
fimmtudagur
27
föstudagur
28 29 30 31

Tónleikar

diddu_listi

Vínartónleikar 5.1.2012 19:30 Harpa 6.1.2012 19:30 Harpa 7.1.2012 17:00 Harpa

Vinsælustu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru hinir árlegu Vínartónleikar, og víst er að margir hlakka til að heyra hljómsveitina í léttu og leikandi formi í Hörpu í fyrsta sinn. Dansandi flöskutappar, freyðandi kampavín, fallegir kjólar, reisn og glæsileiki eru einkenni Vínartónlistarinnar sem mörgum þykir ómissandi í upphafi árs. Á Vínartónleikunum 2012 hljómar sígild Vínartónlist, meðal annars Dónárvalsinn sívinsæli eftir valsakónginn sjálfan, Johann Strauss yngri.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Willy Büchler
  • Einsöngvari
    Sigrún Hjálmtýsdóttir
  • Efnisskrá
    Lífleg og skemmtileg Vínartónlist úr ýmsum áttum, m.a. aríur úr Leðurblökunni eftir Johann Strauss og Dónárvalsinn sívinsæli.
 
ungir_oll_listi

Ungir einleikarar 12.1.2012 19:30 Harpa

Það er mikið gleðiefni hversu margir efnilegir tónlistarmenn leynast í skólum landsins og ávallt stór stund þegar nokkrir þeirra fá að stíga á stokk með hljómsveitinni.  Á þessum tónleikum ríkir ávallt sérstök spenna, eftirvænting og gleði yfir þeim mannauði sem íslensk þjóð býr yfir.

Á hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveitin stendur að í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Hver nemandi flytur hálftíma dagskrá með verkum af ólíkum toga, og dómnefndin er skipuð listafólki úr fremstu röð. Það er mikið gleðiefni hversu margir efnilegir tónlistarmenn leynast í skólum landsins og á þessum tónleikum ríkir ávallt sérstök spenna, eftirvænting og gleði yfir þeim mannauði sem íslensk þjóð býr yfir.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikarar
    Elín Arnardóttir,píanó
    Ísak Ríkharðsson, fiðla
    Chrissie Thelma Guðmundsdóttir,fiðla
    Hrafnhildur Árnadóttir, söngur
  • Efnisskrá
    Saint-Saëns: Píanókonsert nr. 2
    Prokofiev: Fiðlukonsert nr.2, op.63
    W.A.Mozart: Fiðlukonsert í A-dúr K.219
    W.A.Mozart: Exultate Jubilate K.165
 
bond_listi

James Bond-veisla 19.1.2012 20:00 Harpa 20.1.2012 20:00 Harpa 21.1.2012 22:00 Harpa

Sinfóníuhljómsveitin býður nú til Bond-veislu þar sem fluttir verða allir helstu smellirnir úr myndunum, meðal annars You Only Live Twice, Nobody Does It Better og A View To a Kill. Breski stjórnandinn og tónskáldið Carl Davis hefur stýrt Bond-tónleikum víða um heim við góðan orðstír. Íslenskir söngvarar í fremstu röð taka þátt í tónleikunum. Árið 2012 eru 50 ár liðin frá því að James Bond birtist í fyrsta sinn á hvíta tjaldinu, í myndinni Dr. No með Sean Connery í aðalhlutverki. Eitt af því sem einkennir Bond-myndirnar er frábær tónlist. Titilstefið þekkja flestir enda hefur það fylgt myndunum frá upphafi.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Carl Davis
  • Kynnir
    Jóhanna Vigdís Arnardóttir
  • Einsöngvarar
    Valgerður Guðnadóttir
    Sigríður Thorlacius
    Eyþór Ingi Gunnlaugsson
    Sigríður Beinteinsdóttir
    Inga Stefánsdóttir
    Páll Óskar Hjálmtýsson
    Jóhanna Vigdís Arnardóttir
  • Efnisskrá
    Leyndarmál Hennar Hátignar fram að tónleikum
 
Ilan_listi

Myrkir músíkdagar 26.1.2012 19:30 Harpa

Á Myrkum músíkdögum leikur Sinfóníuhljómsveitin íslensk verk í bland við erlenda samtímatónlist eftir nokkur af athyglisverðustu tónskáldum samtímans. Metastatis eftir Iannis Xenakis samanstendur af 61 hljóðfæri sem hvert leikur sína sjálfstæðu rödd, svo rennur allt saman í mikilfenglegan hljóðmassa. Hymnos ítalska meistarans Giacinto Scelsi skiptir hljómsveitinni í tvo hópa sem leika hvor á móti öðrum. Hans Abrahamsen er sérstakur gestur á þessum tónleikum og nýtt verk hans, 10 sinfóníur, er samið að hluta fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Meðal fyrrum nemenda Abrahamsen er Hugi Guðmundsson sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2008 fyrir verk sitt Apocrypha.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Efnisskrá
    Giacinto Scelsi: Hymnos
    Hugi Guðmundsson: Orkestur
    Atli Ingólfsson: Mani
    Iannis Xenakis: Metastasis
    Hans Abrahamsen: 10 sinfóníur
 
Hans_Abrahamsen_listi

Tónskáldastofa 27.1.2012 9:30 Harpa

Sinfóníuhljómsveit Íslands vill stuðla að því að íslensk tónskáld fái þá þjálfun og leiðsögn sem nauðsynleg er til að semja fyrir hljómsveit. Í janúar 2012 efnir SÍ í annað sinn til svokallaðrar Tónskáldastofu, þar sem valin verða til þátttöku þrjú hljómsveitarverk eftir tónskáld undir 35 ára aldri. Hljómsveitin mun leika verkin undir stjórn Ilans Volkov, og í kjölfarið fá tónskáldin athugasemdir og leiðbeiningar frá hljómsveitarmeðlimum, stjórnanda, og tónskáldinu Hans Abrahamsen sem einnig verður viðstaddur. Skilafrestur tónverka í Tónskáldastofuna er föstudaginn 23. september 2011, klukkan 12 á hádegi.

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Efnisskrá
    Efnisskrá tilkynnt síðar
    Hans Abrahamsen leiðbeinandi
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica