Sinfóníuhljómsveitin býður nú til Bond-veislu þar sem fluttir verða allir helstu smellirnir úr myndunum, meðal annars You Only Live Twice, Nobody Does It Better og A View To a Kill. Breski stjórnandinn og tónskáldið Carl Davis hefur stýrt Bond-tónleikum víða um heim við góðan orðstír. Íslenskir söngvarar í fremstu röð taka þátt í tónleikunum. Árið 2012 eru 50 ár liðin frá því að James Bond birtist í fyrsta sinn á hvíta tjaldinu, í myndinni Dr. No með Sean Connery í aðalhlutverki. Eitt af því sem einkennir Bond-myndirnar er frábær tónlist. Titilstefið þekkja flestir enda hefur það fylgt myndunum frá upphafi.
Lesa meira Kaupa miða