Janúar 2012

janúar 2012

(Sleppa dagatali)
S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ
1 2 3 4 5
fimmtudagur
6
föstudagur
7
laugardagur
8 9 10 11 12
fimmtudagur
13 14 15 16 17 18 19
fimmtudagur
20
föstudagur
21
laugardagur
22 23 24 25 26
fimmtudagur
27
föstudagur
28 29 30 31

Tónleikar
bond_stor
  • 19.1.2012 20:00
  • Harpa
  • Frá 3.000 kr. til 7.500 kr.
  • 20.1.2012 20:00
  • Harpa
  • Frá 3.000 kr. til 7.500 kr.
  • 21.1.2012 22:00
  • Harpa
  • Frá 3.000 kr. til 7.500 kr.
  • Kaupa miða

James Bond-veisla

„Hristan, ekki hrærðan“

Árið 2012 eru 50 ár liðin frá því að James Bond birtist í fyrsta sinn á hvíta tjaldinu, í myndinni Dr. No með Sean Connery í aðalhlutverki. Síðan eru myndirnar orðnar 24 talsins og enn ein væntanleg.

Eitt af því sem einkennir Bond-myndirnar er frábær tónlist. Titilstefið þekkja flestir enda hefur það fylgt myndunum frá upphafi, en meðal tónlistarmanna sem hafa komið til liðs við myndirnar síðan má nefna Madonnu, Paul McCartney, Duran Duran, A-ha og Tinu Turner.

Sinfóníuhljómsveitin býður nú til Bond-veislu þar sem fluttir verða allir helstu smellirnir úr myndunum, meðal annars You Only Live Twice, Nobody Does It Better, og A View To a Kill.

Breski stjórnandinn og tónskáldið Carl Davis hefur stýrt Bond-tónleikum víða um heim við góðan orðstír, meðal annars á tónleikum í Royal Albert Hall sem þurfti að endurtaka margoft vegna mikillar eftirspurnar.

Íslenskir söngvarar í fremstu röð taka þátt í tónleikunum. Páll Óskar sló öll met með Sinfóníunni á síðasta starfsári og snýr nú aftur á svið Eldborgar ásamt Valgerði Guðnadóttur, Sigríði Thorlacius úr Hjaltalín, Siggu Beinteins, Ingu Stefánsdóttur og Eyþóri Inga Gunnlaugssyni, sem vakti mikla hrifningu í Rocky Horror hjá LA í fyrravetur.

  • Stjórnandi
    Carl Davis
  • Kynnir
    Jóhanna Vigdís Arnardóttir
  • Einsöngvarar
    Valgerður Guðnadóttir
    Sigríður Thorlacius
    Eyþór Ingi Gunnlaugsson
    Sigríður Beinteinsdóttir
    Inga Stefánsdóttir
    Páll Óskar Hjálmtýsson
    Jóhanna Vigdís Arnardóttir
  • Efnisskrá
    Leyndarmál Hennar Hátignar fram að tónleikum

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica