Á Myrkum músíkdögum leikur Sinfóníuhljómsveitin íslensk verk í bland við erlenda samtímatónlist eftir nokkur af athyglisverðustu tónskáldum samtímans. Metastatis eftir Iannis Xenakis samanstendur af 61 hljóðfæri sem hvert leikur sína sjálfstæðu rödd, svo rennur allt saman í mikilfenglegan hljóðmassa. Hymnos ítalska meistarans Giacinto Scelsi skiptir hljómsveitinni í tvo hópa sem leika hvor á móti öðrum. Hans Abrahamsen er sérstakur gestur á þessum tónleikum og nýtt verk hans, 10 sinfóníur, er samið að hluta fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Meðal fyrrum nemenda Abrahamsen er Hugi Guðmundsson sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2008 fyrir verk sitt Apocrypha.
Lesa meira Kaupa miða