Janúar 2012

janúar 2012

(Sleppa dagatali)
S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ
1 2 3 4 5
fimmtudagur
6
föstudagur
7
laugardagur
8 9 10 11 12
fimmtudagur
13 14 15 16 17 18 19
fimmtudagur
20
föstudagur
21
laugardagur
22 23 24 25 26
fimmtudagur
27
föstudagur
28 29 30 31

Tónleikar
Ilan_stor
  • 26.1.2012 19:30
  • Harpa
  • Frá 2.000 kr. til 3.500 kr.
  • Kaupa miða

Myrkir músíkdagar

Nýtt, ferskt og spennandi

Á Myrkum músíkdögum hljóma íslensk verk í bland við erlenda samtímatónlist eftir nokkur af athyglisverðustu tónskáldum samtímans. Iannis Xenakis var eitt af stóru tónskáldunum á síðari hluta 20. aldar. Metastasis var fyrsta stjóra hljómsveitarverk hans sem vakti verulega athygli, samið 1954 eftir að hann hafði numið um skeið hjá Messiaen. Hljómsveitin samanstendur af 61 hljóðfæri sem hvert leikur sína eigin sjálfstæðu rödd, svo að allt rennur saman í mikilfenglegan hljóðmassa.

Hymnos, eða Sálmur, er eitt einfaldasta og áheyrilegasta verk ítalska meistarans Giacinto Scelsi, fyrir stóra hljómsveit sem skipt er upp í tvo hópa sem leika hvor á móti öðrum.

Danska tónskáldið Hans Abrahamsen hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir tónlist sína. Hann lærði m.a. hjá Györgi Ligeti og Per Nørgård og verk hans hafa verið flutt m.a. á Proms-hátíðinni í Lundúnum. Abrahamsen hlaut Wilhelm Hansen-tónskáldaverðlaunin 1995. Hann er sérstakur gestur Sinfóníuhljómsveitarinnar á þessum tónleikum og er nýja hljómsveitarverk hans, 10 sinfóníur, samið að hluta fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Meðal fyrrum nemenda Abrahamsen í Kaupmannahöfn er Hugi Guðmundsson, sem lauk meistaraprófi þaðan vorið 2005 og stundaði einnig framhaldsnám í elektróník í Hollandi. Hugi hefur starfað með fjölda viðurkenndra flytjenda og tónlistarhópa, og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2008 fyrir verk sitt, Apocrypha, og tvö verka hans hafa hlotið sérstaka viðurkenningu á Alþjóðlega tónskáldaþinginu.

  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Efnisskrá
    Giacinto Scelsi: Hymnos
    Hugi Guðmundsson: Orkestur
    Atli Ingólfsson: Mani
    Iannis Xenakis: Metastasis
    Hans Abrahamsen: 10 sinfóníur

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica