Tónskáldastofa
Tónskáld framtíðarinnar
Sinfóníuhljómsveit Íslands vill stuðla að því að íslensk tónskáld fái þá þjálfun og leiðsögn sem nauðsynleg er til að semja fyrir hljómsveit. Oft reynist tónskáldum örðugt að fá reynslu á þessu sviði þar sem tækifærin eru fá og samkeppnin mikil.
Í janúar 2012 efnir SÍ í annað sinn til svokallaðrar Tónskáldastofu, þar sem valin verða til þátttöku þrjú hljómsveitarverk eftir tónskáld undir 35 ára aldri. Hljómsveitin mun leika verkin undir stjórn Ilans Volkov, og í kjölfarið fá tónskáldin athugasemdir og leiðbeiningar frá hljómsveitarmeðlimum, stjórnanda, og tónskáldinu Hans Abrahamsen sem einnig verður viðstaddur. Með þessu framtaki vonast SÍ til að taka virkan þátt í uppeldi íslenskra hljómsveitartónskálda í fremstu röð.
Skilafrestur tónverka í Tónskáldastofuna er föstudaginn 23. september 2011, klukkan 12 á hádegi. Verkin skulu ekki vera lengri en 15 mínútur og fjöldi flytjenda skal ekki vera meiri en sem nemur hefðbundinni stærð Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Verkin skulu merkt með dulnefni og skal umslag með nafni höfundar, merkt dulnefninu, fylgja hverju innsendu verki.
-
Stjórnandi
Ilan Volkov
-
Efnisskrá
Efnisskrá tilkynnt síðar
Hans Abrahamsen leiðbeinandi



