Vínartónleikar
Gleði og glaumur á nýju ári
Vinsælustu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru hinir árlegu Vínartónleikar, og víst er að margir hlakka til að heyra hljómsveitina í léttu og leikandi formi í Hörpu í fyrsta sinn. Dansandi flöskutappar, freyðandi kampavín, fallegir kjólar, reisn og glæsileiki eru einkenni Vínartónlistarinnar sem mörgum þykir ómissandi í upphafi árs. Á Vínartónleikunum 2012 hljómar sígild Vínartónlist, meðal annars Dónárvalsinn sívinsæli eftir valsakónginn sjálfan, Johann Strauss yngri.
Austurríski hljómsveitarstjórinn Willy Büchler er svo sannarlega á heimavelli þegar kemur að léttri og leikandi Vínartónlist. Hann er aðalgestastjórnandi Strauss-hátíðarhljómsveitarinnar í Vínarborg og hefur í yfir 20 ár heillað tónleikagesti með líflegum, gáskafullum en um leið vönduðum tónlistarflutningi.
Büchler er sjálfur Vínarbúi í húð og hár, er afburða fiðluleikari og var um árabil einn af leiðandi fiðluleikurum Útvarpshljómsveitarinnar í Vínarborg. Hann stjórnar árlega Vínartónleikum í Konzerthaus í Vínarborg við mikinn fögnuð, og það er óhætt að spá því að gleðistraumar muni flæða um Hörpu þegar Sinfónían tekur að leika ljúfa Vínartóna undir hans stjórn.
Það er óþarfi að kynna Sigrúnu Hjálmtýsdóttur fyrir landsmönnum. Diddú hefur um áratuga skeið verið ein af ástsælustu söngkonum þjóðarinnar, sama hvort hún treður upp með Spilverki þjóðanna eða syngur aríur á óperusviði. Á Vínartónleikana 2012 hefur hún valið nokkrar eftirlætis aríur sínar í léttari kantinum, meðal annars aríur úr Leðurblökunni eftir Strauss, sem og slagarinn sígildi, Wien, Wien, nur du allein.
-
Stjórnandi
Willy Büchler
-
Einsöngvari
Sigrún Hjálmtýsdóttir
-
Efnisskrá
Lífleg og skemmtileg Vínartónlist úr ýmsum áttum, m.a. aríur úr Leðurblökunni eftir Johann Strauss og Dónárvalsinn sívinsæli.



