| M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2
fimmtudagur
|
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9
fimmtudagur
|
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16
fimmtudagur
|
17
föstudagur
|
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23
fimmtudagur
|
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
Á fyrstu tónleika sína í Hörpu hefur Osmo Vänskä valið hina magnþrungnu sjöttu sinfóníu Mahlers, sem er samin fyrir risavaxna hljómsveit og eitt áhrifamesta verk höfundarins. Sinfónían veitir innsýn í heim ógnar og óreiðu; tónlistin er kraftmikil en dökk, eins og skuggi dauðans sé hvarvetna nálægur. Sópransöngkonan Helena Juntunen hefur sungið við Finnsku þjóðaróperuna um árabil og komið fram við helstu óperuhús meginlandsins. Vänska valdi hana til að syngja með Lundúnafílharmóníunni og Juntunen stal senunni: „Hún er náttúruafl,“ stóð í The Times eftir tónleikana.
Lesa meira Kaupa miða
Hin magnþrungna sinfónía nr. 11 eftir Sjostakovitsj hefur verið kölluð „kvikmyndatónlist án kvikmyndarinnar.“ Hún lýsir því þegar Rússakeisari sigaði hermönnum sínum á mótmælendur í Pétursborg árið 1905. Bandaríska fiðlustjarnan, Hilary Hahn sló í gegn með Sinfóníuhljómsveitinni í fyrra og lét strax í ljós ósk sína að leika í Hörpu. Hún hefur leikið hinn sólríka fiðlukonsert Mozarts víða um heim. Claude Vivier þótti eitt efnilegasta tónskáld sinnar kynslóðar þegar hann var myrtur á hrottafenginn hátt 1983. Stjórnandinn Peter Oundjian lærði á fiðlu hjá Itzhak Perlman og var fyrsti fiðluleikari Tókýó-strengjakvartettsins um fjórtán ára skeið. Hann er nú aðalstjórnandi Skosku þjóðarhljómsveitarinnar.
Lesa meira Kaupa miða
Sinfóníhljómsveit Íslands leikur tónlistina úr kvikmyndum Peters Jackson um Hringadróttinssögu Tolkien. Tónskáldið Howard Shore tónsetti myndirnar og vann m.a. til Óskarsverðlauna 2002 og 2004 fyrir framlag sitt. Undanfarin ár hefur tónleikaútgáfa verksins farið sigurför um heiminn og slegið aðsóknarmet hjá ýmsum hljómsveitum. Þetta verða stórglæsilegir tónleikar þar sem fram koma einsöngvarar, fjórir kórar og fjöldi óvenjulegra hljóðfæra, auk þess sem myndefni sem tengist kvikmyndunum og sögu Tolkiens verður varpað á tjald í Eldborg. Svissneska tónskáldið Ludwig Wicki hefur stýrt þessu stórvirki í London, New York og víðar.
Lesa meira Kaupa miða
Þýska sópransöngkonan Simone Kermes er einstök í sinni röð. Vald hennar á röddinni er með eindæmum, jafnt í ljóðrænum söng sem hröðustu tónarunum, og hún syngur með þvílíkri innlifun að leitun er að öðru eins. Hún hefur sungið aríur eftir m.a. Händel og Vivaldi inn á tvo verðlaunadiska hjá Sony Classical sem hafa sópað að sér viðurkenningum, meðal annars Echo-, Midem- og Choc de la Musique-verðlaununum, auk þess sem nýjasti diskur hennar var valinn diskur mánaðarins hjá tímaritinu Gramophone. Kermes hlaut fyrstu verðlaun í Bach-keppninni í Leipzig árið 1996 og hefur síðan sungið í öllum helstu óperu- og tónleikahúsum heims við mikinn fögnuð.
Lesa meira Kaupa miða
Nýr aðalstjórnandi Sinfóníunnar, Ilan Volkov, er mikill áhugamaður um nýja tónlist og hefur hlotið mikið lof fyrir störf sín á þeim vettvangi. Hann mun stýra árlegri tónlistarhátíð í Reykjavík sem verður helguð nýrri tónlist, bæði innlendri og erlendri, í samstarfi við tónlistarmenn úr ýmsum áttum. Þessi hátíð er spennandi viðbót við fjölbreytta tónleikaflóru landsins og hafa áform Volkovs þegar vakið athygli utan landsteinanna. John Tilbury og Oren Ambarchi koma fram með hljómsveitinni er hún leikur verk eftir John Cage, Magnús Blöndal o.fl.
Kaupa hátíðarpassa Kaupa dagpassa
Lesa meira