Eftirlætis barokk
Rauðhærða sópranstjarnan
Þýska sópransöngkonan Simone Kermes er einstök í sinni röð. Vald hennar á röddinni er með eindæmum, jafnt í ljóðrænum söng sem hröðustu tónarunum, og hún syngur með þvílíkri innlifun að leitun er að öðru eins. Hún hefur sungið aríur eftir m.a. Händel og Vivaldi inn á tvo verðlaunadiska hjá Sony Classical sem hafa sópað að sér viðurkenningum, meðal annars Echo-, Midem- og Choc de la Musique-verðlaununum, auk þess sem nýjasti diskur hennar var valinn diskur mánaðarins hjá tímaritinu Gramophone. Kermes hlaut fyrstu verðlaun í Bach-keppninni í Leipzig árið 1996 og hefur síðan sungið í öllum helstu óperu- og tónleikahúsum heims við mikinn fögnuð.
Á efnisskrána hefur Kermes valið glæsilegar aríur úr óperum eftir Händel og Vivaldi sem henta rödd hennar fullkomlega. Þeirra á meðal má nefna aríu Vivaldis, Agitata de due venti úr óperunni Griselda, en innlifaður flutningur Kermes á einmitt þessari aríu hefur slegið í gegn á vefsvæðinu YouTube þar sem tugþúsundir hafa fylgst með henni fara á kostum. Á milli atriða leikur Sinfónían nokkra konserta barokktímans, m.a. eftir Vivaldi, og þar er af nógu að taka enda samdi „rauði presturinn“ yfir 500 einleikskonserta og af þeim eru um 230 fyrir fiðlu.
Ítalski fiðluleikarinn Isabella Longo leiðir Sinfóníuna auk þess sem hún leikur einleik í tveimur konsertum Vivaldis. Enrico Casazza stórnar æfingum en hann er einn fremsti barokkfiðluleikari Ítalíu og hefur leikið um árabil með fremstu barokksveit heimalands síns, L'Europa Galante undir stjórn Fabio Biondi. Hann á að baki langt samstarf við barokksöngvara á borð við Andreas Scholl og Ian Bostridge, auk þess sem hann mundar fiðluna á báðum verðlaunadiskum Simone Kermes.
Athugið að breyting hefur verið frá auglýstri efnisská.
-
Stjórnandi
Isabella Longo
-
Einleikari
Isabella Longo
-
Stjórnandi á æfingum
Enrico Casazza
-
Einsöngvari
Simone Kermes
-
Efnisskrá
Arcangelo Corelli: Concerto grosso op. 6 nr. 4
G.F. Händel: Óperuaríur
Antonio Vivaldi: Óperuaríur
Antonio Vivaldi: Fiðlukonsertar í D-dúr og e-moll



