Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Tónleikar
hillary_hahn_stor
  • 9.2.2012 19:30
  • Harpa
  • Frá 2.000 kr. til 6.500 kr.
  • Kaupa miða

Hilary snýr aftur

Fiðlustjarna í toppformi

Peter Oundjian lærði á fiðlu hjá Itzhak Perlman við Juilliard-tónlistarskólann og var fyrsti fiðluleikari Tókýó-strengjakvartettsins um fjórtán ára skeið. Hann hefur verið aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Toronto síðan 2004 og þykir hafa gjörbreytt þeirri sveit til hins betra með músíkalskri túlkun sinni. Nýverið bættist enn ein rósin í hnappagat Oundjians, því hann var ráðinn aðalstjórnandi Skosku þjóðarhljómsveitarinnar.

Hilary Hahn sló rækilega í gegn þegar hún lék með Sinfóníuhljómsveitinni í fyrra og lét strax í ljós ósk sína að koma aftur til landsins og leika í Hörpu. Bandaríska fiðlustjarnan er á föstum samningi hjá Deutsche Grammophon, hefur hlotið Grammy-verðlaun fyrir hljómdiska sína og tímaritið Gramophone valdi hana tónlistarmann ársins 2009. Hún hefur leikið hinn sólríka fiðlukonsert Mozarts víða um heim við frábærar undirtektir.

Kanadíska tónskáldið Claude Vivier lærði undir handarjaðri Stockhausens og þótti eitt efnilegasta tónskáld sinnar kynslóðar þegar hann var myrtur á hrottafenginn hátt árið 1983. Hann samdi Orion árið 1979 sem upphitun fyrir sitt stærsta verk, óperuna Kopernikus. Tónlistin er einkar litskrúðug og athyglisverð enda leitaði Vivier víða fanga og sótti innblástur bæði í stjörnufræðina og kvikmyndir Ingmars Bergman.

Hin magnþrungna sinfónía nr. 11 eftir Sjostakovitsj hefur verið kölluð „kvikmyndatónlist án kvikmyndarinnar“. Hún lýsir því þegar Rússakeisari sigaði hermönnum sínum á mótmælendur í Sankti Pétursborg árið 1905, en þótt tónlistin vísi í sögulega atburði sagði Sjostakovitsj að verkið fjallaði í raun um efni sem stæði samtímanum nærri. „Hún er um fólkið sem hættir að trúa á hið góða, vegna þess að bikar hins illa er barmafullur.“

  • Stjórnandi
    Peter Oundjian
  • Einleikari
    Hilary Hahn
  • Efnisskrá
    Claude Vivier: Orion
    W.A. Mozart: Fiðlukonsert nr. 4
    Dmitríj Sjostakovitsj: Sinfónía nr. 11

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica