Nýr aðalstjórnandi Sinfóníunnar, Ilan Volkov, er mikill áhugamaður um nýja tónlist og hefur hlotið mikið lof fyrir störf sín á þeim vettvangi. Hann mun stýra árlegri tónlistarhátíð í Reykjavík sem verður helguð nýrri tónlist, bæði innlendri og erlendri, í samstarfi við tónlistarmenn úr ýmsum áttum. Þessi hátíð er spennandi viðbót við fjölbreytta tónleikaflóru landsins og hafa áform Volkovs þegar vakið athygli utan landsteinanna. John Tilbury og Oren Ambarchi koma fram með hljómsveitinni er hún leikur verk eftir John Cage, Magnús Blöndal o.fl.
Kaupa hátíðarpassa Kaupa dagpassa
Lesa meira
Paul McCreesh er í fremstu röð þeirra sem sérhæfa sig í tónlist barokks og klassíkur. Hann vakti mikla hrifningu er hann stjórnaði Sköpuninni eftir Haydn á tónleikum Sinfóníunnar 2009. McCreesh snýr aftur með Mozart-veislu í farteskinu. Messan í c-moll var stærsta tónsmíð Mozarts fyrir kór og hljómsveit, að undanskilinni sálumessunni sem hann náði ekki að ljúka. Annað eins einvalalið einsöngvara og einleikara hefur sjaldan sést á tónleikum hérlendis. Sænska sópransöngkonan Miah Persson, skoska sópransöngkonan Lisa Milne, Andrew Staples og Ágúst Ólafsson syngja. Elfa Rún Kristinsdóttir og Lise Berthaud leika einleik í Sinfonia Concertante fyrir fiðlu, viólu og hljómsveit.
Lesa meira Kaupa miða
Rúmenski píanóleikarinn Mihaela Ursuleasa var aðeins sextán ára gömul þegar hún bar sigur úr býtum í Clöru Haskil-keppninni, og síðan hefur vegur hennar vaxið með hverju árinu. Nýlega debúteraði hún m.a. í Carnegie Hall og Concertgebouw, og í fyrra hlaut fyrsti hljómdiskur hennar hin virtu ECHOverðlaun sem einleiksdiskur árins. Leikandi létt spilamennska hennar þykir henta tónlist Mozarts fullkomlega.
Lesa meira Kaupa miða