Mozart-veisla
Snillingurinn frá Salzburg
Breski stjórnandinn Paul McCreesh hefur um árabil verið í fremstu röð þeirra sem sérhæfa sig í tónlist barokks og klassíkur. Tímaritið Classic CD nefndi hann meðal 100 merkustu stjórnenda 20. aldarinnar og hann vakti mikla hrifningu hljómsveitar og áheyrenda þegar hann stjórnaði Sköpuninni eftir Haydn á tónleikum Sinfóníunnar vorið 2009.
Nú snýr McCreesh aftur til Íslands með Mozart-veislu í farteskinu. Messan í c-moll var stærsta tónsmíð Mozarts fyrir kór og hljómsveit, að undanskilinni sálumessunni sem hann náði ekki að ljúka við fyrir andlát sitt. Messan er raunar einnig ófullgerð, en Mozart samdi hana í Vínarborg á árunum 1782–83, þegar hann var á hátindi ferils síns. Unnusta hans, Konstanze Lange, hafði nýverið náð sér eftir erfið veikindi og Mozart samdi verkið sem þakklætisvott til almættisins fyrir að hafa gefið henni bata. Því kemur ekki á óvart að glæsilegur sópraneinsöngur einkenni verkið, enda eru þættir á borð við aríuna „Et incarnatus“ með því guðdómlegasta sem Mozart festi á blað.
Það mun óhætt að segja að annað eins einvalalið einsöngvara og einleikara hafi sjaldan sést á tónleikum hérlendis.
Skoska sópransöngkonan Lisa Milne hefur komið fram með mörgum fremstu hljómsveitarstjórum heims, m.a. James Levine í Boston, Simon Rattle í Berlín og Iván Fischer í Búdapest, auk þess sem hún hefur sungið í Brúðkaupi Fígarós og Töfraflautunni bæði við Metropolitan- og Glyndebourne.
Eftir að breski tenórinn Benjamin Hulett útskrifaðist frá Oxfordháskóla, þar sem hann nam og söng við New College, hefur hann komið fram með mörgum af fremstu kórum og hljómsveitum Bretlands. Hann starfaði við Hamborgaróperuna í fjögur ár og söng þar Tamino í Töfraflautunni, Ferrando í Così fan tutte og Jaquino í Fidelio meðal annarra hlutverka. Hann hefur einnig sungið við Bæversku ríkisóperuna, Þýsku ríkisóperuna, Opera North og Theater an der Wien, þar sem hann tók þátt í heimsfrumsýningu á óperunni Die Besessenen eftir Johannes Kalitzke.
Ágúst Ólafsson er hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir fágaðan og hrífandi söng, og er þess skemmst að minnast að hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin í flokknum Tónlistarflytjandi ársins fyrir túlkun sína á öllum ljóðaflokkum Schuberts á Listahátíð í Reykjavík 2010.
Hörður Áskelsson stofnaði Mótettukór Hallgrímskirkju árið 1982 en hann hefur lengi verið meðal fremstu kóra Íslands. Á verkefnalista kórsins má finna fjölmargar óratóríur, passíur og sálumessur en líka kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum. Mótettukórinn hefur oft lagt í tónleikaferðir til Evrópu og Norður Ameríku og tekið þátt í ýmsum tónlistarhátíðum.
Á seinustu árum hefur kórinn flutt mörg stórverk. Má þar nefna öll helstu verk eftir J.S. Bach, sálumessur Mozarts og Fauré, Vesper Rachmaninoffs sem og óratóríurnar Elía og Paulus eftir Mendelssohn, auk annarra verka eftir Händel og Mozart. Haustið 2009 frumflutti Mótettukórinn, ásamt fjórum einsöngvurum og hljómsveit, óratóríuna Cecilíu eftir Áskel Másson og Thor Vilhjálmsson, en verkið var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2010 sem tónverk ársins. Í apríl 2010 flutti kórinn Þýska sálumessu eftir Johannes Brahms á Kirkjulistahátíð við góðar undirtektir tónleikagesta og gagnrýnenda.
Sinfonia Concertante fyrir fiðlu, viólu og hljómsveit er meðal þess besta sem Mozart samdi fyrir einleiksstrengi og í raun einstakt verk í sinni röð. Hér hljómar það í flutningi tveggja úrvalsspilara. Elfa Rún Kristinsdóttir var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir glæsilegan flutning sinn á Árstíðum Vivaldis og Piazzollas með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2010, en kemur nú fram með hljómsveitinni í Hörpu í fyrsta sinn.
Franski víóluleikarinn Lise Berthaud er aðeins 26 ára gömul en hefur verið í sviðsljósinu í rúman áratug, eða frá því hún bar sigur úr býtum í Evrópukeppni ungra einleikara árið 2000.
-
Stjórnandi
Paul McCreesh
-
Einleikarar
Elfa Rún Kristinsdóttir
Lise Berthaud -
Einsöngvarar
Rosemary Joshua
Lisa Milne
Benjamin Hulett
Ágúst Ólafsson -
Kór
Mótettukór Hallgrímskirkju
Hörður Áskelsson kórstjóri -
Efnisskrá
W.A. Mozart: Sinfonia concertante og Messa í c-moll



