Uppáhalds Mozart
Fígaró, Júpíter og leikandi lýrík
Rúmenski píanóleikarinn Mihaela Ursuleasa var aðeins sextán ára gömul þegar hún bar sigur úr býtum í Clöru Haskil-keppninni, og síðan hefur vegur hennar vaxið með hverju árinu. Nýlega debúteraði hún m.a. í Carnegie Hall og Concertgebouw, og í fyrra hlaut fyrsti hljómdiskur hennar hin virtu ECHOverðlaun sem einleiksdiskur árins. Leikandi létt spilamennska hennar þykir henta tónlist Mozarts fullkomlega.
Konsertinn í C-dúr K. 467 er með þeim allra vinsælustu, saminn árið 1785 þegar Mozart var á hátindi frægðar sinnar og hélt hverja glæsitónleikana á fætur öðrum handa músíkþyrstum Vínarbúum. Ægifagur hægi kaflinn var meðal annars notaður í kvikmyndinni Elvira Madigan, en ytri þættirnir einkennast af gáska og fjöri.
Júpíter-sinfónían var sú síðasta sem Mozart samdi, sumarið 1789 þegar hann var skuldum vafinn og ferill hans hafði náð botninum. Tónlistin ber þess engin merki, og sköpunargáfu tónskáldsins virðast engin mörk sett. Hápunktinum er náð í fjörugum lokakafla þar sem hvert eftirminnilegt stefið hljómar á fætur öðru, en síðan gerir Mozart hið ómögulega og lætur þau öll hljóma á sama tíma.
Eivind Aadland er einn af virtustu hljómsveitarstjórum Noregs og var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Þrándheimi um sjö ára skeið frá árinu 2004. Á Þrándeimsárunum stjórnaði hann öllum sinfóníum Beethovens og Malhers. Aadland hefur stjórnað flestum helstu sinfóníuhljómsveitum Norðurlanda og er reglulegur gestastjórnandi fílharmóníusveitanna í Ósló og Bergen, Sinfóníuhljómsveitar Stafangurs, Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar og Sænsku kammerhljómsveitarinnar. Hann hefur stjórnað Don Giovanni, Brúðkaupi Fígarós, Töfraflautunni og Leðurblökunni við Norsku óperuna í Ósló við góðan orðstír.
-
Stjórnandi
Eivind Aadland
-
Einleikari
Mihaela Ursuleasa
-
Efnisskrá
W.A. Mozart: Brúðkaup Fígarós, forleikur
Píanókonsert nr. 21 í C-dúr, K. 467 og Sinfónía nr. 41 í C-dúr (Júpíter)



