Tónleikar
Ég veit þú kemur!
Sigurður Guðmunds & Sigríður Thorlacius - syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands
Tveir af flottustu dægurlagasöngvurum þjóðarinnar, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, taka höndum saman með Sinfóníuhljómsveitinni og flytja vinsælar söngperlur frá 6. og 7. áratugnum í útsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar.
Tónleikarnir eru nú endurteknir vegna fjölda áskorana, en þeir voru áður á dagskrá Sinfóníunnar í Hörpu í júní 2011. Uppselt var á tvenna tónleika sem fengu frábæra dóma í fjölmiðlum. Upptaka frá tónleikunum var gefin út á geisladiski fyrir síðustu jól og var ein mest selda hljómplata ársins.
Sigríður Thorlacius hefur áður sungið með Sinfóníunni við frábærar undirtektir ásamt hljómsveitinni Hjaltalín, en Sigurður Guðmundsson, oft kenndur við Hjálma eða Memfismafíuna, kom í fyrsta sinn fram með Sinfóníunni á þessum tónleikum.
Á þessari hugljúfu og skemmtilegu efnisskrá er m.a. að finna lög eftir Jón Múla Árnason, Oddgeir Kristjánsson, Luis Bonfa, Burt Bacharach og Jacques Brel sem hafa verið flutt af söngvurum á borð við Ellý Vilhjálms, Hauk Morthens, Ragnar Bjarnason, Dionne Warwick, Dusty Springfield, Ninu Simone, Astrud Gilberto, Frank Sinatra og Edith Piaf.


