Á þriðju tónleikunum í Beethoven-hring Sinfóníunnar hljóma tvær vinsælar sinfóníur meistarans. Eftir hina hádramatísku fimmtu sinfóníu venti hann kvæði sínu í kross og samdi Sveitasinfóníuna „Minningar um sveitalífið.“ Fuglakvak, glaðværir sveitadansar, ógnvænlegt þrumuveður og ljúfir hjarðsöngvar eru meðal þess sem heyrist. Sjöunda sinfónía Beethovens er einhver glaðværasta og fjörugasta tónlist sem meistarinn festi á blað enda einkennist verkið af rytmískri spennu í bland við léttar og leikandi laglínur. Þekktastur er án efa hægi kaflinn, sem oft hefur hljómað í kvikmyndum, meðal annars undir hápunkti myndarinnar The King's Speech þar sem Georg VI Bretlandskonungur ávarpar þjóð sína við upphaf heimsstyrjaldarinnar síðari.
Lesa meira Kaupa miða