Beethoven-hringurinn III
Beethoven-hringurinn III
Á þriðju tónleikunum í Beethoven-hring Sinfóníunnar hljóma tvær sérlega vinsælar og aðgengilegar sinfóníur meistarans. Beethoven var ákafur náttúruunnandi og kunni hvergi betur við sig en uppi í sveit með skissubók og blýant í hendi.
Eftir að hafa samið hina hádramatísku fimmtu sinfóníu venti hann kvæði sínu í kross og samdi Sveitasinfóníuna, sem hann gaf undirtitilinn „Minningar um sveitalífið.“ Fuglakvak, glaðværir sveitadansar, ógnvænlegt þrumuveður og ljúfir hjarðsöngvar eru meðal þess sem heyrist í sinfóníunni sem er vafalaust vinsælasta náttúrumúsík sögunnar að Árstíðum Vivaldis undanskildum.
Sjöunda sinfónía Beethovens er einhver glaðværasta og fjörugasta tónlist sem meistarinn festi á blað. Richard Wagner, sem dáði Beethoven öðrum tónskáldum framar, sagði að tónlistin væri eins og „dans í sinni fullkomnustu mynd“ enda einkennist verkið af rytmískri spennu í bland við léttar og leikandi laglínur. Þekktastur er án efa hægi kaflinn, sem oft hefur hljómað í kvikmyndum, meðal annars undir hápunkti myndarinnar The King's Speech þar sem Georg VI Bretlandskonungur ávarpaði þjóð sína við upphaf heimsstyrjaldarinnar síðari.
-
Stjórnandi
Hannu Lintu
-
Efnisskrá
Ludwig van Beethoven
Sinfónía nr. 6, Sveitasinfónían og Sinfónía nr. 7


