Júní 2012

júní 2012

(Sleppa dagatali)
F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14
fimmtudagur
15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Tónleikar
hannu_lintu_II_stor
  • fimmtudagur, 7.júní 2012, 19:30
  • Harpa
  • Frá 2.000 kr. til 6.500 kr.
  • föstudagur, 8.júní 2012, 19:30
  • Harpa
  • Frá 2.000 kr. til 6.500 kr.
  • Kaupa miða

Beethoven-hringurinn IV

Óðurinn til gleðinnar

Sinfóníuhljómsveitin lokar Beethovenhringnum með tveimur síðustu sinfóníum meistarans, sem báðar eru meistaraverk hvor á sinn hátt. Sú áttunda er smærri í sniðum, kraftmikil en býr einnig yfir ljóðrænni mýkt. Níunda sinfónían er eitt frægasta og áhrifamesta verk sígildrar tónlistar hvernig sem á það er litið.

Páll Ísólfsson komst þannig að orði í grein sinni um Beethoven frá árinu 1938: „Gleði og bræðralagi hefur aldrei verið sungið eins fagurlega lof og í 9. hljómkviðunni. Þess vegna er hún svo oft leikin við ýmis tímamót víðsvegar um heim. Því hvort heldur hún er leikin í Þýskalandi, Frakklandi, Englandi, Rússlandi: alls staðar snerta þessir tónar mannleg hjörtu, og fylla þau fögnuði vonarinnar um bætt kjör og betri örlög mannanna.“

Flutningur Níundu sinfóníunnar að þessu sinni er tileinkaður aldarminningu dr. Róberts Abraham Ottóssonar, sem fæddist í Berlín þann 17. maí 1912 en fluttist til Íslands árið 1935 þegar nasistar höfðu gert gyðingum óbærilegt að starfa í Þýskalandi. Hér vann hann margs konar sigra, ritaði merka doktorsritgerð um Þorlákstíðir, stofnaði Söngsveitina Fílharmóníu og stýrði Sinfóníuhljómsveit Íslands á yfir 70 tónleikum. Í febrúar 1966 stjórnaði Róbert fyrsta flutningi Níundu sinfóníunnar á Íslandi, en þá var hún flutt fimm sinnum fyrir fullu Háskólabíói og var gjarnan tekið svo til orða, að fólk hefði „séð“ þá Níundu.

  • Stjórnandi
    Hannu Lintu
  • Einsöngvarar
    Andrew Kennedy
    Hulda Björk Garðarsdóttir
    Nathalía Druzin Halldórsdóttir
    Ágúst Ólafsson
  • Kór
    Mótettukór Hallgrímskirkju
  • Efnisskrá
    Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 8 og Sinfónía nr. 9, Óðurinn til gleðinnar

Senda



Bakhjarlar

VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica