| M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18
laugardagur
|
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Ævintýrið um Maxímús Músíkús er einstakt og hjartnæmt tónlistarævintýri um mús sem villist inn á æfingu hjá sinfóníuhljómsveit. Á æfingunni kynnist Maxi tónlistinni af eigin raun og tekur hlustendur með sér inn í heillandi hljóðheim sinfóníuhljómsveitarinnar. Tónlistin sem hljómar á tónleikunum er úr ýmsum áttum og má þar nefna Bolero eftir Maurice Ravel og Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns. Ævintýrið um Maxa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun og verður flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands í Kennedy Center í febrúar 2013.
Lesa meira
Fjölbreytt og aðgengileg klukkutímalöng dagskrá flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt Jóhanni Má Nardeau trompetleikara. Jóhann Már er einn af okkar efnilegustu hljóðfæraleikurum, fæddur árið 1987. Hann ólst upp í Skólahljómsveit Kópa vogs og lauk
námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík aðeins 18 ára að aldri. Jóhann stundar nú framhaldsnám við Konservatoríið í París. Hann hefur unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum og komið fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins auk þess að leika með hljómsveitum erlendis. Stjórnandi er Bernharður Wilkinson.