OPIÐ HÚS Á MENNINGARNÓTT
Fjölbreytt klassík
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður á tvenna tónleika á Menningarnótt í Eldborgarsal Hörpu. Ókeypis er á tónleikana og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á barnatónleika með Maxa kl. 14 , músinni knáu og síðdegistónleika kl. 17 með fjölbreyttri klassík.
Hægt verður að sækja aðgöngumiða í miðasölu á tónleikadegi.
Fjölbreytt klassík kl. 17
Fjölbreytt og aðgengileg klukkutímalöng dagskrá flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt Jóhanni Má Nardeau trompetleikara. Jóhann Már er einn af okkar efnilegustu hljóðfæraleikurum, fæddur árið 1987. Hann ólst upp í Skólahljómsveit Kópa vogs og lauk
námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík aðeins 18 ára að aldri. Jóhann stundar nú framhaldsnám við Konservatoríið í París. Hann hefur unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum og komið fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins auk þess að leika með hljómsveitum erlendis.
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri er tónleikagestum Sinfóníunnar að góðu kunnur. Bernharður hefur starfað með hljómsveitinni hátt í fjóra áratugi, fyrst sem flautuleikari og síðar sem hljómsveitarstjóri. Bernharður hefur verið mikilvirkur í tónlistarkennslu og miðlun tónlistar fyrir börn og ungmenni og hefur auk þess stjórnað fjölda vinsælla tónleika með Sinfóníunni og helstu dægurstjörnum landsins.
-
Efnisskrá
John Adams
Short Ride in a Fast Machine
Edward Elgar
Nimrod
Alexander Arutiunian
Trompetkonsert
Georges Bizet
L'Arlésienne svíta -
Stjórnandi
Bernharður Wilkinson
-
Einleikari
Jóhann Már Nardeau


