September 2012

september 2012

(Sleppa dagatali)
L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7 8
laugardagur
9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21
föstudagur
22 23 24 25 26 27
fimmtudagur
28
föstudagur
29
laugardagur
30

Tónleikar
disney2_stor
  • fimmtudagur, 27.september 2012, 19:30
  • Harpa
  • 2.200 kr. - 6.500 kr.
  • Kaupa miða

TÖFRAVERÖLD DISNEYS

Töfraheimur Disneys lifnar við á tónleikum fyrir ævintýrafólk á öllum aldri þar sem leikin og sungin er ódauðleg tónlist úr smiðju Walts Disney. Framlag Disneys til teiknimyndanna er óþarft að kynna en hann hefur oftar en nokkur annar einstaklingur hlotið Óskarsverðlaunin eftirsóttu. Á tónleikunum verða flutt eftirlætislög úr völdum myndum meistarans, syrpur í hljómsveitarbúningi og einsöngslög flutt af valinkunnum söngvurum í fremstu röð á Íslandi. Tónlist úr myndum Disneys hefur án efa ratað inn á fleiri heimili á heimsvísu en tónlist úr nokkrum öðrum myndum. Lögin hafa orðið að heimilisvinum og sem slík órjúfanlegur hluti af fallegum minningarbrotum bernskuáranna. Hver kannast ekki við fjöruga og taktfasta tónlistina úr Konungi ljónanna, rómantísku ballöðurnar úr Fríðu og dýrinu, dulúðugu tónana úr Aladdín og smellnu sönglögin eins og Supercalifragilisticexpialidocious úr Mary Poppins.

Töfraveröld Disneys eru tónleikar fyrir alla fjölskylduna þar sem áheyrendum er boðið upp á einstaka upplifun með tímalausum myndum úr kvikmyndum Disneys sem sýndar eru meðan á tónlistarflutningnum stendur.

  • Efnisskrá
    Tónlist úr smiðju Walts Disney
  • Stjórnandi
    David Danzmayr
  • Einsöngvarar
    Felix Bergsson, Stefán Hilmarsson og Valgerður Guðnadóttir

Senda



Bakhjarlar

VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica