| L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8
laugardagur
|
9 | 10 | 11 | 12 | 13
fimmtudagur
|
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20
fimmtudagur
|
21
föstudagur
|
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27
fimmtudagur
|
28
föstudagur
|
29
laugardagur
|
30
sunnudagur
|
Flestir eiga sér uppáhaldsleikfang. Nú er tækifærið að taka gullin sín með á tónleika og upplifa Leikfangasinfóníuna með góðvinum. Fyrsti þáttur sinfóníunnar verður fluttur með aðstoð leikfangasextetts þar sem Maxímús Músíkús leikur á alls oddi. Leikfangasinfónían hefur notið mikilla vinsælda og er oft og tíðum leikin þegar mikið liggur við eins og á opnunartónleikum Litla tónsprotans. Ekki er með öllu ljóst hver samdi Leikfangasinfóníuna en hún hefur verið eignuð þremur tónskáldum: Leopold Mozart, Joseph Haydn og Edmund Angerer. Í sinfóníunni koma fyrir margvíslegar fuglaflautur, hrossabrestur, dótatrompet og fleiri áhugaverð hljóðfæri.
Lesa meira Kaupa miða