Á þriðju tónleikunum í Beethoven-hring Sinfóníunnar hljóma tvær vinsælar sinfóníur meistarans. Eftir hina hádramatísku fimmtu sinfóníu venti hann kvæði sínu í kross og samdi Sveitasinfóníuna „Minningar um sveitalífið.“ Fuglakvak, glaðværir sveitadansar, ógnvænlegt þrumuveður og ljúfir hjarðsöngvar eru meðal þess sem heyrist. Sjöunda sinfónía Beethovens er einhver glaðværasta og fjörugasta tónlist sem meistarinn festi á blað enda einkennist verkið af rytmískri spennu í bland við léttar og leikandi laglínur. Þekktastur er án efa hægi kaflinn, sem oft hefur hljómað í kvikmyndum, meðal annars undir hápunkti myndarinnar The King's Speech þar sem Georg VI Bretlandskonungur ávarpar þjóð sína við upphaf heimsstyrjaldarinnar síðari.
Lesa meira Kaupa miða
Sinfóníuhljómsveitin lokar Beethovenhringnum. Tvær síðustu sinfóníum meistarans eru báðar meistaraverk hvor á sinn hátt. Sú níunda er eitt frægasta og áhrifamesta verk sígildrar tónlistar. Páll Ísólfsson komst þannig að orði í grein sinni um Beethoven frá árinu 1938: „Gleði og bræðralagi hefur aldrei verið sungið eins fagurlega lof og í 9. hljómkviðunni. Þess vegna er hún svo oft leikin við ýmis tímamót víðsvegar um heim. Því hvort heldur hún er leikin í Þýskalandi, Frakklandi, Englandi, Rússlandi: alls staðar snerta þessir tónar mannleg hjörtu, og fylla þau fögnuði vonarinnar um bætt kjör og betri örlög mannanna.“
Lesa meira Kaupa miða
Christine Schäfer er ein dáðasta sópransöngkona Þýskalands. Nýverið söng hún í Rosenkavalier í Metropolitan-óperunni þar sem hún þurfti að verjast ágengni Kristins Sigmundssonar í hlutverki Ochs baróns. Adagio eftir Jón Nordal var frumflutt árið 1966 og þykir eitt hans allra besta verk: fágað, ljóðrænt og heilsteypt. Það er í uppáhaldi hjá nýjum aðalstjórnanda hljómsveitarinnar sem óskaði sérstaklega eftir að stjórna því á fyrsta ári sínu. Ófullgerða sinfónía Schuberts er lokapunkturinn aftan við starfsár hljómsveitarinnar. Þessi stórkostlega tónsmíð, í tveimur þáttum en ekki fjórum eins og almennt tíðkaðist á 19. öld, fékk aldrei að hljóma meðan hann lifði.
Lesa meira Kaupa miða