Beint í leiðarkerfi vefsins.
| F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Eivind Aadland hóf feril sinn sem fiðluleikari. Hann lærði hjá Yehudi Menuhin og var um árabil konsertmeistari Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Bergen, en söðlaði síðar um og hóf stjórnandaferil sinn með Kammersveit Evrópusambandsins.
Lesa meira um þennan listamannIlan Volkov tók við af Osmo Vänskä sem aðalstjórnandi BBC-sinfóníunnar í Skotlandi í janúar 2003. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir gegnsæja túlkun sína á tónlist klassíska og rómantíska tímans, en er sérstakur áhugamaður um flutning nútímatónlistar. Volkov stýrir skosku BBC-hljómsveitinni á yfir 25 tónleikum ár hvert, og hefur ferðast með hljómsveitinni til Spánar, Suður-Ameríku og Eystrasaltsríkjanna.
Lesa meira um þennan listamannIlya Gringolts vakti heimsathygli árið 1998, þegar hann hlaut fyrstu verðlaun í Paganini-keppninni og hreppti um leið sérstök verðlaun fyrir að vera yngsti keppandi til að komast yfirhöfuð í lokaumferðina, og fyrir bestu túlkun á kaprísum Paganinis. Gringolts lærði fiðluleik í St. Pétursborg og við Juilliard-skólann í New York þar sem Itzhak Perlman og Dorothy Delay voru kennarar hans.
Lesa meira um þennan listamannÚkraínski hljómsveitarstjórinn Kirill Karabits er nýtekinn við starfi aðalstjórnanda við Bournemouth-sinfóníuhljómsveitina á Englandi. Hann hefur þegar komið fram með fjölmörgum virtum hljómsveitum austan hafs og vestan, m.a. Minnesota-hljómsveitinni, Dönsku útvarpshljómsveitinni og Þjóðarsinfóníu Bandaríkjanna í Washington D.C.
Lesa meira um þennan listamannBreski tónlistarmaðurinn Matthew Halls hefur getið sér afar gott orð á undanförnum árum bæði sem semballeikari og hljómsveitarstjóri. Hann hefur stýrt The King's Consort hópnum m.a. í Concertgebouw í Amsterdam; La Cité de la Musique í París og Konserthúsinu í Berlín.
Lesa meira um þennan listamann