Sergio Tiempo
Argentínski píanóleikarinn Sergio Tiempo hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda undanfarin ár og þykir vera einn fremsti píanisti sinnar kynslóðar. Hann hélt debút-tónleika sína 14 ára gamall í Concertgebouw-höllinni í Amsterdam og hefur síðan komið fram í helstu tónleikasölum heims, m.a. Fílharmóníunni í Berlín, Alte Oper í Frankfurt, Tsjajkovskíj-salnum í Moskvu og Kennedy Center í Washington, DC. Hann hefur leikið einleik með Chicago-sinfóníunni, Cleveland-hljómsveitinni, Fílharmóníuhljómsveitinni í New York, og fjölmörgum hljómsveitum í Evrópu og Japan.
Hann hefur leikið kammertónlist með Mischa Maisky, leikið á tvö píanó með Mörthu Argerich og hljóðritað fjölda geisladiska. Sá nýjasti hefur að geyma verk fyrir selló og píanó eftir Felix Mendelssohn (Deutsche Grammophon) og þar leikur Tiempo einmitt með Mischa Maisky.
Sergio Tiempo fæddist í Venesúela 1972 en ólst upp í Argentínu og hóf píanónám hjá móður sinni tæplega þriggja ára gamall. Hann lærði auk þess hjá Michel Beroff í París, og hefur auk þess numið hjá Murray Perahia og Dimitri Bashkirov.



