Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Ilya Gringolts

 

gringolts_storIlya Gringolts vakti heimsathygli árið 1998, þegar hann hlaut fyrstu verðlaun í Paganini-keppninni og hreppti um leið sérstök verðlaun fyrir að vera yngsti keppandi til að komast yfirhöfuð í lokaumferðina, og fyrir bestu túlkun á kaprísum Paganinis. Gringolts lærði fiðluleik í St. Pétursborg og við Juilliard-skólann í New York þar sem Itzhak Perlman og Dorothy Delay voru kennarar hans.

 

Gringolts hefur nýverið komið fram með Mahler-kammersveitinni undir stjórn Claudios Abbado, og í fyrrasumar lék hann allar fiðlusónötur Beethovens á Verbier-hátíðinni í Sviss. Undanfarið hefur hann auk þess komið fram á tónleikum í Wigmore Hall, og er nýkominn úr tónleikaferð um Suður-Ameríku. Hann hljóðritaði þríleikskonsert Beethovens ásamt Bolivar-hljómsveitinni og Claudio Abbado árið 2007 (fyrir Deutsche Grammophon) og hljóðritun hans af kammerverkum eftir Taneyev hlaut Gramophone-verðlaunin sama ár. Nú hljóðritar hann fyrir Hyperion og hefur nýverið gefið út disk með konsertum eftir Taneyev og Arenskíj undir stjórn Ilans Volkov sem einmitt er væntanlegur til landsins í janúar.

 

http://ilyagringolts.com/



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica