Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Eivind Aadland

aadland_listiEivind Aadland hóf feril sinn sem fiðluleikari. Hann lærði hjá Yehudi Menuhin og var um árabil konsertmeistari Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Bergen, en söðlaði síðar um og hóf stjórnandaferil sinn með Kammersveit Evrópusambandsins. Hann hefur verið aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Þrándheimi um fimm ára skeið og hefur einnig stjórnað flestum helstu sinfóníuhljómsveitum Norðurlanda, m.a. í Osló, Stafangri, Bergen, Gautaborg og Malmö. Hann hefur einnig stjórnað óperum Mozarts við Norsku óperuna í Osló.

Á alþjóðlegum vettvangi hefur Aadland stjórnað hljómsveitunum í Toulouse og Liège, Vestur-áströlsku sinfóníuhljómsveitinni, og útvarpshljómsveitunum í Stuttgart og Köln. Hann hefur hljóðritað fjölmörg verk bæði sem fiðluleikari og stjórnandi, og má þar nefna öll verk Arne Nordheim fyrir fiðlu og hljómsveit (BIS), og tónlist eftir Ole Bull (Simax).



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica