Stefán Jón Bernharðsson
Stefán Jón Bernharðsson lærði hjá Joseph Ognibene við Tónlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan 1998. Hann nam síðan hjá prófessor Frøydis Ree Wekre við Norska tónlistarháskólann í Ósló þar til 2005. Hann hefur verið fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2000.
Hann gegndi áður stöðu fyrsta hornleikara við Óperuna í Malmö og leiddi horndeildina í Orkester Norden frá 1997 til 2001.
Hann hefur komið reglulega fram sem einleikai með hljómsveitum og hefur hlotið fjölda verðlauna í alþjóðlegum samkeppnum, m.a. fyrstu verðlaun í ConocoPhillips-keppninni í Ósló og önnur verðlaun í alþjóðlegu Lieksa hornkeppninni í Finnlandi.



