Matthew Halls
Breski tónlistarmaðurinn Matthew Halls hefur getið sér afar gott orð á undanförnum árum bæði sem semballeikari og hljómsveitarstjóri. Hann hefur stýrt The King's Consort hópnum m.a. í Concertgebouw í Amsterdam; La Cité de la Musique í París og Konserthúsinu í Berlín.
Hann hefur stjórnað Jólaóratóríu Bachs í Berlín, Skosku kammersveitinni á lokatónleikum Edinborgarhátíðarinnar og Floriodante eftir Handel á Handel-hátíðinni í Halle í Þýskalandi. Hann hefur komið fram sem semballeikari m.a. í Wigmore Hall og South Bank Centre, og lék nýverið einleik í Brandenborgarkonsert nr. 5 eftir Bach á tónleikaferð um Evrópu með John Eliot Gardiner og Ensku barokkeinleikurunum.



