Martin Fröst
Sænski klarínettusnillingurinn Martin Fröst er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2009/10. Hann þykir með mest spennandi tónlistarflytjendum samtímans og hlýtur hvarvetna mikið lof þar sem hann kemur fram. Meðal þess sem framundan er á starfsárinu eru tónleikar með Minnesota-hljómsveitinni og Osmo Vänskä, og með Sinfóníuhljómsveit Vínarborgar í Konzerthaus.
Fröst þótti slá í gegn þar sem hann kom fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar og Gustavo Dudamel á Proms-hátíðinni 2008, og nýverið kom hann fram í Stokkhólmi undir stjórn Ashkenazys. Hann hélt í langa tónleikaferð með Mitsuko Uchida um Bandaríkin árið 2008 þar sem þau fluttu m.a. Kvartett um endalok tímans eftir Olivier Messiaen.
Fjöldi tónskálda hefur tileinkað honum verk sín, m.a. Krzysztof Penderecki og Anders Hillborg. Fröst hefur hljóðritað fjölda geisladiska fyrir BIS-útgáfuna og upptaka hans af klarínettukonsertum eftir Nielsen og Kalevi Aho var valin ein af diskum mánaðarins hjá Gramophone í júlí 2007. Hljóðritun hans af konserti Mozarts hefur þegar selst í yfir 300.000 eintökum.



