September 2010

september 2010

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
föstudagur
11 12 13 14 15 16
fimmtudagur
17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Ásdís Valdimarsdóttir

asdis_storÁsdís Valdimarsdóttir ólst upp í Reykjavík í stórum systkinahópi. Hún hóf tónlistarnám við Barnamúsíkskólann 8 ára gömul og hélt síðan áfram í Tónlistarskólanum í Reykjavík undir leiðsögn Rutar Ingólfsdóttur þar til hún hélt til náms við Juilliard skólann í New York haustið 1980. Kennarar hennar þar voru Paul Doktor, Felix Galimir og meðlimir Juilliard-strengjakvartettsins, og haustið 1985 útskrifaðist hún með BM og MM-gráður. Hana langaði til að kynna sér tónlistarlíf meginlands Evrópu líka og flutti því til Þýskalands og hélt áfram námi við tónlistarháskólann í Detmold undir leiðsögn Nobuko Imai.

 

Ásdís hefur komið fram í sex heimsálfum síðan hún lauk námi.Hún var meðlimur í Miami-strengjakvartettinum, vann mikið með Kammerhljómsveit Evrópu, leiddi víólurnar í Deutsche Kammerphilharmonie, lék með Mutare Ensemble, Belcanto Strengja tríóinu og Ensemble Modern, og var víóluleikari Chilingirian-strengjakvartettsins í átta ár. Hún hefur unnið með mörgum heimsfrægum tónlistarmönnum, þeirra á meðal Claudio Abbado, Gidon Kremer, Barry Douglas, Heinrich Schiff, Steven Isserlis, Maxim Vengerov og Isabella van Keulen. Hún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, London Soloists Chamber Orchestra, London Mozart Players, Russian National Orchestra og Deutsche Kammerphilharmonie og tekið upp m.a. fyrir Hyperion, EMI, Deutsche Grammophon og útvarpsstöðvar víða um heim.

 

Ásdís hefur kennt undanfarin ár við Royal College of Music og Trinity College í London, og hefur búið í Amsterdam síðan í byrjun árs 2004. Síðan þá hefur hún meðal annars komið fram með Yosuko Horigome, Colin Carr, Philippe Griffin, Jóni Laxdal og Petersen Kvartettinum. Einnig hefur hún gert upptökur fyrir Hollenska útvarpið og leitt víólurnar í Amsterdam Sinfonietta, Nederlands Philharmonic og Nederlands Radio Philharmonic.



Aðalstyrktaraðilar

VÍS Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica