Eva Ollikainen
Eva Ollikainen er ekki nema 27 ára gömul en hefur þegar vakið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hóf píanónám þriggja ára og þótti efnilegur píanisti, en þegar komið var í Sibeliusar-akademíuna skipti hún um fag og nam hljómsveitarstjórn hjá Jorma Panula og Leif Segerstam. Hún vann fyrstu verðlaun í Panula-keppninni fyrir unga hljómsveitarstjóra árið 2003 og var m.a. aðstoðarstjórnandi hjá Kurt Masur og Christoph von Dohnányi í kjölfarið.
Stjarna er fædd, sagði Helsingin Sanomat um frumraun Ollikainen í höfuðborg Finnlands. James Levine bauð henni að taka þátt í Tanglewood-tónlistarhátíðinni 2006 og hún hefur einnig sótt tíma í hljómsveitarstjórn hjá Pierre Boulez.
Eva Ollikainen hefur m.a. stjórnað Útvarpshljómsveitunum í Finnlandi og Svíþjóð, Fílharmóníuhljómsveitunum í Stokkhólmi og Turku, Tapiola-sinfóníettunni og Sinfóníuhljómsveitunum í Helsingborg og Þrándheimi. Þá debúteraði hún við Konunglegu sænsku óperuna 2008 í óperum eftir Ravel og Stravinskíj, og hefur auk þess stjórnað við Finnska þjóðarballettinn. Hún kom fyrst til Íslands haustið 2005 og stjórnaði framhaldsskólatónleikum hljómsveitarinnar með næstum engum fyrirvara. Bæði hljómsveit og áheyrendur hrifust af vasklegri framgöngu hennar og víst að miklar vonir eru bundnar við þessa finnsku kjarnakonu.



