Robert Spano
Robert Spano hefur um árabil verið meðal fremstu hljómsveitarstjóra Bandaríkjanna. Hann tók við stjórn Sinfóníuhljómsveitarinnar í Atlanta árið 2001 og hefur þótt standa sig með eindæmum vel, enda hafa hljóðritanir hans með sveitinni hlotið mikið lof gagnrýnenda.
Spano hlaut m.a. tvenn Grammy-verðlaun 2003 fyrir hljóðritun sína á sinfóníum eftir Vaughan-Williams, og aftur 2005 fyrir Sálumessu eftir Hector Berlioz. Spano er einnig mikill áhugamaður um nýja tónlist og hefur frumflutt fjölda verka með hljómsveitinni.
Spano var tónlistarstjóri nútímatónlistar við Tanglewood Music Center 2003-4, og var aðalstjórnandi Brooklyn Philharmonic frá 1996-2004. Hann hefur stjórnað öllum helstu hljómsveitum Norður-Ameríku, m.a. í Boston, Chicago, Houston, Montreal, Pittsburgh, San Francisco, St. Louis, Cleveland, Minnesota, Washington, New York og Los Angeles. Tímaritið Musical America kaus Spano hljómsveitarstjóra ársins 2008.
Spano er einnig mikill áhugamaður um tónlistarfræðslu og stýrði námskeiði fyrir hljómsveitarstjóra við Tanglewood Music Center um árabil, auk þess sem hann hefur verið fastráðinn við Juilliard, Curtis og Oberlin-tónlistarháskólana.



