Daníel Bjarnason
Daníel Bjarnason lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH vorið 2000. Sama ár hóf hann nám í tónsmíðum og hljómsveitarstjórnun við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi í hvoru tveggja vorið 2003. Daníel stundaði frá 2004-2007 framhaldsnám í hljómsveitarstjórnun við Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi og lauk þaðan prófi með hæstu einkunn.
Daníel vinnur jöfnum höndum sem hljómsveitarstjóri og tónskáld með ýmsum listamönnum og hljómsveitum m.a. við Íslensku óperuna. Daníel er einn af stofnendum kammersveitarinnar Ísafoldar og hefur verið listrænn stjórnandi og hljómsveitarstjóri hennar frá upphafi.
Árið 2008 hlaut Daníel 2. verðlaun og sérstök meðmæli Alþjóðlega tónskáldaþingsins fyrir verk sitt All sounds to silence come sem var samið sérstaklega fyrir Ísafold í tengslum við Sumartónleika í Skálholti. Hann tók einnig á síðasta ári þátt í verkefninu „Operagenesis“ fyrir ung tónskáld á vegum Konunglegu óperunnar í Covent Garden í London.
Daníel gekk nýverið til liðs við plötufyrirtækið Bedroom Community og mun fyrsti diskurinn með verkum hans koma út síðar á þessu ári. Þar verður m.a. að finna báða píanókonserta Daníels, þann fyrri leikinn af tónskáldinu sjálfu en þann síðari leikinn af Víkingi Heiðari.



