Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Gissur Páll Gissurarson

gissur_storGissur Páll Gissurarson hóf nám við Söngskólann í Reykjavík veturinn 1997 undir handleiðslu Magnúsar Jónssonar. Hann flutti til Ítalíu veturinn 2001 og hóf nám við Conservatorio G.B Martini í Bologna. Að loknu námi vorið 2005 fór Gissur Páll að sækja einkatíma hjá Kristjáni Jóhannssyni. Gissur Páll hefur sungið við ýmis tækifæri á Íslandi. Frumraun hans á sviði var þegar hann fór með titilhlutverkið í Oliver Twist, þá aðeins ellefu ára. Eftir að hefðbundið söngnám hófst söng hann í Kór íslensku óperunar og kom fram sem einsöngvari við ýmis tilefni.

 

Sumarið 2003 steig Gissur Páll sín fyrstu skref á ítölsku óperusviði sem Ruiz í Il trovatore, sem sett var upp í Ravenna og leikstýrt af Cristina Mazzavillani Muti. Veturinn 2004 tók Gissur Páll þátt í uppfærslu á Così fan tutte undir stjórn Claudio Abbado sem sýnd var í Ferrara, Reggio Emilia og Modena. Sumarið 2005 söng hann Danilo í Kátu ekkjunni í útileikhúsi við Gardavatnið á Ítalíu. Haustið 2005 hélt Gissur Páll til Japan þar sem hann kom fram alls 11 sinnum fyrir hönd Íslands á EXPO sýningunni í Nagoya og var áætlaður gestafjöldi um 100.000 manns. Gissur Páll tók þátt í söngkeppninni Flaviano Labò í maí 2006. Til leiks voru skráðir 123 keppendur og hafnaði hann í þriðja sæti.

 

Haustið 2006 hélt Gissur sína fyrstu einsöngstónleika á Íslandi í Salnum í Kópavogi við góðar undirtektir. Að tónleikunum loknum hélt hann á ný til Ítalíu og tók þátt í söngkepni í Brescia og hreppti þar tvenn verðlaun. Gissur Páll var einsöngvari á jólatónleikum Karlakórs Reykjavíkur fyrir jólin 2006 og sumarið 2007 söng hann í uppfærlsu óperuhússins í Heidelberg á Rakaranum frá Sevilla. Gissur Páll hefur tekið þátt í uppfærslum á Werther eftir Massenet og Les Mammelles de Tiresias eftir Poulenc á Sardiníu, komið fram með Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum, og sungið Sálumessu Verdis í Hallgrímskirkju ásamt úrvalsliði íslenskra einsöngvara.



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica