Bernharður Wilkinson
Bernharður Wilkinson hóf tónlistarnám sitt sem kórdrengur við Westminster Abbey í Lundúnum, og lærði síðar flautuleik við Royal Northern College of Music, þar sem aðalkennari hans var Trevor Wye. Hann sótti meistarnámskeið hjá Marcel Moyse, William Bennett og James Galway, og var ráðinn flautuleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1975.
Bernharður er stofnfélagi í Blásarakvintett Reykjavíkur sem hefur komið fram víða um heim, m.a. í Wigmore Hall, Carnegie Hall og Óperuhúsinu í Sidney. Þeir hafa hljóðritað sex geisladiska fyrir Chandos og BIS, sem allir hafa fengið afbragðs dóma.
Bernharður stýrði um árabil Söngsveitinni Fílharmóníu og sönghópnum Hljómeyki. Hann tók við stöðu aðstoðarstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 1999 og gegndi henni í nokkur ár. Hann hefur stjórnað SÍ á fjölda tónleika og frumflutti m.a. fyrstu sinfóníu Atla Heimis Sveinssonar með hljómsveitinni. Þá hefur Bernharður stjórnað Kammersveit Reykjavíkur á fjölda tónleika og gert með henni ótal hljóðritanir.



