Páll Óskar Hjálmtýsson
Páll Óskar hefur fyrir löngu sungið sig inn í hjörtu landsmanna og er tvímælalaust einn vinsælasti söngvari þjóðarinnar. Hann kemur úr mikilli tónlistarfjölskyldu og hóf snemma að syngja opinberlega. Páll Óskar er þekktastur fyrir að syngja ballöður, diskó, hefðbundin íslensk lög og teknó.
Hann gaf út sinn fyrsta sólódisk árið 1993, og átti auk þess feril sem söngvari með hljómsveitum eins og Milljónamæringunum og Casino. Önnur sólóbreiðskífa hans, Palli, var mest seldi diskurinn á Íslandi árið 1995.
Páll Óskar söng í Söngvakeppni íslenskra sjónvarpsstöðva árið 1997 og hefur átt langt samstarf við Moniku Abendroth, hörpuleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Breiðskífan Allt fyrir ástina kom út 2007 og hefur notið mikilla vinsælda.
Páll Óskar kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn í júní 2009 á Söngbók Gunnars Þórðarsonar þar sem hann sló í gegn með frábærri frammistöðu sinni.



