Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Christopher Warren-Green

Breski hljómsveitarstjórinn Christopher Warren-Green hefur gegnt stöðu aðalstjórnanda Kammersveitar Lundúna frá árinu 1988 og á árunum 1998 til 2005 var hann auk þess aðalstjórnandi Norrænu kammersveitarinnar og Sinfóníettunnar í Jönköping. Hann stjórnar reglulega öllum helstu hljómsveitum Bretlandseyja og þykir skara framúr þegar kemur að tónlist í léttari kantinum. Hann stjórnaði SÍ á Vínartónleikum árið 2007 og þótti standa sig með eindæmum vel í því hlutverki.

 

Það eru fleiri en Íslendingar sem hrífast af stjórnunarstíl Warren-Greens, því að Karl Bretaprins er meðal dyggustu stuðningsmanna hans. Það var Warren-Green sem stjórnaði tónlistinni við brúðkaup Karls og Camillu Parker-Bowles og stjórnaði auk þess hátíðartónleikum í tilefni áttræðisafmælis Elísabetar Bretadrottningar. Hann hefur auk þess komið fram með Radu Lupu og Maxim Vengerov á einkatónleikum á heimilum konungsfjölskyldunnar, Buckingham-höll og Highgrove House.

 

Christopher Warren-Green hefur hljóðritað fjölda geisladiska, m.a. fyrir Philips, Virgin, Chandos og Deutsche Grammophon. 



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica