September 2010

september 2010

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
föstudagur
11 12 13 14 15 16
fimmtudagur
17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Finnur Bjarnason

finnur_stor

Finnur Bjarnason tenór stundaði söngnám við Tónskóla Sigursveins í Reykjavík og síðan framhaldsnám við Guildhall School of Music and Drama og National Opera Studio í London.

 

Helstu óperuhlutverk Finns eru Sagnaþulur í The Rape of Lucretia og Tamínó í Töfraflautunni hjá Íslensku óperunni, Tebaldo í I Capuleti e i Montecchi hjá Grange Park Opera, Don Ottavio í Don Giovanni hjá Glyndebourne Touring Opera og Odoardo í Ariodante hjá English National Opera.

 

Á tónleikum hefur Finnur m.a. sungið Messías eftir Händel (Barbican, Royal Festival Hall, Birmingham, Liverpool, Glasgow, Cardiff, Huddersfield og Boston - USA debut), Jóhannesarpassíuna eftir Bach (Dublin og London), 9. sinfóníu Beethovens (með Sinfóníuhljómsveit Íslands) og Serenade eftir Britten (St. John‘s Smith Square), auk þess sem hann hefur sungið á fjölda ljóðatónleika, m.a. í Wigmore Hall og St.George‘s Brandon Hill í Bristol.

 

Af upptökum Finns má nefna Sönglög eftir Robert Schumann (Mál og menning 1998) og Sönglög Jóns Leifs (Smekkleysa 2001), sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin.



Aðalstyrktaraðilar

VÍS Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica