Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hanna Dóra Sturludóttir

hanna_dora_stor

Hanna Dóra Sturludóttir stundaði söngnám hjá Kristni Sigmundssyni og Snæbjörgu Snæbjarnar við Söngskólann í Reykjavík áður en hún hélt til framhaldsnáms við Listaháskólann í Berlín, þar sem hún útskrifaðist með láði vorið 1998. Árið 1995 vann hún ljóðasöngkeppnina „Paula Lindberg-Salomon“ í Berlín og hljóðritaði í framhaldi af því tvo geisladiska með ljóðasöngvum frá 20.öld.

 

Hanna Dóra hefur komið fram sem gestasöngvari víðsvegar í Þýskalandi, meðal annars í Komische Oper í Berlín og undanfarin tvö ár einnig í Ríkisóperunni í Hamborg og Berlín. Á árunum 1998-2001 var hún fastráðin við óperuhúsið í Neustrelitz þar sem hún söng mörg helstu sópranhlutverk óperubókmenntana. Samhliða óperusöngnum hefur Hanna Dóra komið fram á tónleikum um allt Þýskaland og víða í Evrópu og tónleikahald hefur meðal annars borið hana til Qatar og Egyptalands.

 

Á Íslandi hefur hún sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands við mörg tækifæri, haldið fjölda ljóðatónleika, sungið í uppsetningum Íslensku Óperunnar („Töfraflautan“ 2001 og „Tökin hert“ 2005 og titilhlutverk í „Ariadne auf Naxos“ 2007) og sungið Vínartónleika með Salónhljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar. Árið 2006 kom Hanna Dóra fram sem sérstakur gestur á Artarena tónleikahátíðinni í Sviss, þar sem hún ásamt Steinunni Birnu Ragnarsdóttur, flutti eingöngu íslensk lög, og fengu tónleikarnir afar jákvæða umfjöllun. Haustið 2008 söng Hanna Dóra aðalhlutverkið í nýrri óperu úr óperusmiðju Novoflot, sem sýnd var í Berlin og aftur í München á þessu ári.



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica