Ilan Volkov
Ilan Volkov tók við af Osmo Vänskä sem aðalstjórnandi BBC-sinfóníunnar í Skotlandi í janúar 2003. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir gegnsæja túlkun sína á tónlist klassíska og rómantíska tímans, en er sérstakur áhugamaður um flutning nútímatónlistar. Volkov stýrir skosku BBC-hljómsveitinni á yfir 25 tónleikum ár hvert, og hefur ferðast með hljómsveitinni til Spánar, Suður-Ameríku og Eystrasaltsríkjanna.
Hann hefur auk þess komið fram á tónleikum með helstu einleikurum samtímans: Daniel Barenboim, Mstislav Rostropovich, Emmanuel Ax, Viktoria Mullova, Heinrich Schiff, Thomas Zehetmair, Christian Tetzlaff og Stephen Kovacevich.
Volkov er fæddur í Ísrael árið 1976 og var valinn aðalstjórnandi Æskulýðshljómsveitar London Philharmonic árið 1997. Tveimur árum síðar varð hann aðstoðarstjórnandi Boston-sinfóníunnar og varð yngsti aðalstjórnandi BBC-hljómsveitar fyrr og síðar þegar hann tók við starfi sínu í Skotlandi. Volkov er einnig einn af stofnendum Levontin 7, sem er tónlistarklúbbur í Tel Aviv þar sem hljóma bæði klassísk tónlist og djass, elektróník og rokk.



