Lise de la Salle
Lise de la Salle er fædd árið 1988 og hélt fyrstu tónleika sína í franska útvarpið níu ára gömul. Hún vann fjölda keppna í Frakklandi og árin 2003 og 2004 skaust hún upp á stjörnuhimininn þegar hún bar sigur úr býtum í European Young Concert Artists-keppninni í París og Young Concert Artists International-keppninni í New York.
Hún hefur ferðast um heiminn síðan 2001, þótt hún komi ekki fram nema á 50 tónleikum á ári þar sem hún hefur nýverið lokið námi sínu við Tónlistarháskólann í París. Hún hefur leikið einleik m.a. í Konzerthaus og Fílharmóníunni í Berlin, Louvre í París, Herkúlesarsalnum í München og Lincoln Center í New York.



