Hallveig Rúnarsdóttir
Hallveig Rúnarsdóttir hóf söngnám hjá Sigurði Demetz árið 1991. Hún lauk 8. stigi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Rutar L. Magnússon árið 1998. Það sama ár hóf hún nám hjá Theresu E. Goble við Guildhall School of Music and Drama í London og útskrifaðist þaðan með láði sumarið 2001. Hallveig söng hlutverk Fiordiligi í óperunni Così fan Tutte eftir W. A. Mozart hjá Óperustúdíói Austurlands sumarið 2002 og söng hlutverk Jane í Happy End eftir Kurt Weill hjá Sumaróperu Reykjavíkur 2004. Hallveig hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim, sungið einsöng í kirkjulegum verkum t.d. í Hallgrímskirkju, Áskirkju og Vídalínskirkju auk þess að koma fram við fjöldamörg tækifæri hér á landi. Hún hefur flutt einsöngskantötur eftir Mozart og Bach með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og sungið með kammerhópnum Caput.
Hún kom í fyrsta sinn fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2005 þar sem hún söng sópranhlutverkið í verki Richards Einhorn, Voices of Light. Hún hefur einnig sungið sópranhlutverkið í Carmina Burana eftir Carl Orff með söngsveitinni Fílharmoníu og Kantötu nr. 51, Jauchzet Gott in allen Landen, eftir Johann Sebastian Bach á Aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Af næstu verkefnum hjá Hallveigu má nefna geisladisk með nýrri íslenskri söngtónlist sem kemur út innan skamms. Hallveig hefur sérstaklega verið virk í flutningi nýrrar tónlistar og hefur frumflutt mörg ný íslensk verk, t.d. á Listahátíð í Reykjavík og á Sumartónleikum í Skálholti, auk upptaka fyrir útvarp. Hallveig hefur haldið fjölda einsöngstónleika á Íslandi undanfarin ár þar sem hún hefur lagt áherslu á ljóðasöng.



