Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Mark Tucker

tucker_stor

Mark Tucker hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum fyrir flutning sinn á tónlist barokk- og klassíska tímans. Hann stundaði tónlistarnám í Cambridge og við Guildhall School of Music and Drama, og debúteraði í London með tónleikum í Purcell Room og Royal Festival Hall árið 1984. Tucker hefur sungið undir stjórn allra helstu barokkstjórnenda heims undanfarna áratugi. Hann fór með titilhlutverkið í L´Orfeo eftir Monteverdi í Queen Elizabeth Hall undir stjórn Philip Pickett, og hefur sungið Kvöldbænir Monteverdis (Vespro 1610) í Markúsarkirkjunni í Feneyjum með John Eliot Gardiner og Monteverdi-kórnum, og á Salzburgarhátíðinni með Nikolaus Harnoncourt.

 

Tucker hefur einnig komið fram í fjölda þekktra óperuhúsa, m.a. í Covent Garden (Billy Budd), Chatelet-leikhúsinu í París (Mitridate undir stjórn Christophe Rousset) og Torino (Draumur á Jónsmessunótt). Hann hefur margoft komið fram á tónleikum með Vladimir Ashkenazy, m.a. í Stríðssálumessu Brittens ásamt Æskulýðshljómsveit Evrópusambandsins, og í Draumi Gerontiusar ásamt hljómsveit Sesseljuakademíunnar í Róm. Þá frumfluttu þeir Ashkenazy og Tucker í sameiningu ljóðaflokkinn Vek Moy eftir Rodion Schedrin. Tucker hefur sungið inn á fjölda hljómdiska og má þar nefna Krýningu Poppeu eftir Monteverdi undir stjórn Gardiners (Deutsche Grammophon), og Draum á Jónsmessunótt eftir Britten undir stjórn Sir Colin Davis (Philips). Tucker söng síðast á Íslandi í Missa solemnis eftir Beethoven undir stjórn Ashkenazys vorið 2008.



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica