Jón Svavar Jósefsson
„Sjaldan hefur undirritaður upplifað jafnfjölbreytta og víðfeðma túlkun jafnungs söngdebútants, hvort heldur á alþjóðlega kunnum óperuaríum sem íslenzkum gullaldarsönglögum, og hér var í boði. Lífleg leikræn sviðsframkoma, inntakshlaðin textatúlkun, víðfeðmt styrkleikasvið og litrík tónbeiting, að ógleymdum tandurskýrum framburði – allt lagðist það á eitt um að tjá öllum nærstöddum með sjötommunöglum að hér voru á ferð hæfileikar sem ættu mikið í vændum með sama framhaldi,“ skrifaði Ríkharður Örn Pálsson gagnrýnandi Morgunblaðsins eftir einsöngstónleika sem Jón Svavar Jósefsson hélt í Salnum í nóvember 2007.
Jón Svavar Jósefsson útskrifaðist frá óperudeild Universität für Musik und darstellende Kunst Wien í júní 2007. Hann hefur sótt fjölda námskeiða í söng og sviðslistum á Íslandi, Belgíu og Austurríki. Jón hefur haldið marga einsöngstónleika og komið víða fram, á Íslandi sem og annars staðar.
Vorið 2008 söng Jón Svavar hlutverk Gulglielmos í óperunni Cosí fan tutte eftir W. A. Mozart sem flutt var í Íslensku óperunni.



