Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Susanna Mälkki

malkki_stor

Susanna Mälkki er fædd í Helsinki 1969 og lærði sellóleik hjá Hannu Kiiski á unga aldri. Hún fór síðar í frægan hljómsveitarstjórabekk Jormas Panula við Sibeliusarakademíuna auk þess sem hún lærði hjá Leif Segerstam og við Royal Academy of Music í Lundúnum. Hún hefur einnig sótt meistaranámskeið hjá Esa-Pekka Salonen.

 

Hún var leiðandi sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar frá 1995-98, en sagði starfinu lausu til að einbeita sér að hljómsveitarstjórn. Hún var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Stafangri frá 2002-2005 og tók við sem aðalstjórnandi Ensemble Intercontemporain, eins frægasta nútíma-tónlistarhóps heims, árið 2006.

 

Mälkki hefur stjórnað fjölda nýrra ópera, m.a. finnsku frum-uppfærsluna á Powder Her Face eftir Thomas Adés árið 1999, sem varð til þess að tónskáldið bauð henni til að aðstoða sig við flutning óperunnar á Englandi. Hún stýrði flutningi á L´Amour de Loin eftir Kaiju Saariaho við Finnsku þjóðaróperuna og í fyrrasumar vakti hún mikla athygli og frábæra dóma gagnrýnenda þegar hún stýrði Birminham-sinfóníuhljómsveitinni á tvennum tónleikum á Mostly-Mozart hátíðinni í Lincoln Center í New York. Á undanförnum árum hefur hún einnig stýrt Berlínarfílharmóníunni, Concertgebouw-hljómsveitinni í Amsterdam og hljómsveitinni Fílharmóníu í Lundúnum. Framundan eru fyrstu tónleikar hennar í Carnegie Hall og frumraun hennar við Parísaróperuna.



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica