Sæunn Þorsteinsdóttir
Sæunn Þorsteinsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1984. Hún byrjaði 5 ára gömul að læra á selló hjá Hauki Hannessyni við Tónlistarskóla Íslenska Suzukisambandsins. Er hún var 7 ára fluttist hún til Bandaríkjanna þar sem hún hefur búið að mestu síðan. Sæunn útskrifaðist frá Cleveland Institute of Music árið 2006 með BM-gráðu og hlaut þar verðlaun sem framúrskarandi nemandi bæði í sellóleik og kammertónlist. Þá lá leiðin til Juilliard skólans í New York þar sem aðalkennari hennar var Joel Krosnick og lauk hún meistaragráðu þaðan árið 2008. Aðrir helstu kennarar hennar hafa verið Tanya Lesinsky Carey og Richard Aaron. Hún hefur einnig leikið á fjölda meistarnámskeiða, m.a. hjá Steven Isserlis, Anner Bylsma og Zara Nelsova og var skiptinemi árið 2004 í Konservatoríinu í París (CNSM) hjá Michel Strauss.
Sæunn hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir leik sinn m.a. verðlaun til minningar um Zara Nelsova í Naumburg International Violoncello Competition í New York City og Janigro Family og Romanini Foundation verðlaunin í Antonio Janigro International Violoncello Competition í Zagreb, Króatíu. Hún hefur komið fram víða í Bandaríkjunum og Evrópu bæði sem einleikari og kammermúsikant og tekið þátt í fjölda tónlistarhátíða, unnið og komið fram með fjölda frábærra listamanna. Má þar nefna m.a. Marlboro Music Festival með Mitsuko Uchida og Kim Kashkashian, Perlman Chamber Music Workshop í strengjakvartett með Itzhak Perlman. Einnig má nefna Kronberg sellóhátíðina þar sem hún var meðal einleikara á lokatónleikum hátíðarinnar. Síðast var hún hér á landi í júní og lék þá m.a. einleik með Kammersveitinni Ísafold í frumflutningi verksins Bow to String eftir Daníel Bjarnason á tónlistarhátíðinni Við Djúpið.
Um þessar mundir býr Sæunn í New York og er félagi í „The Academy“ í Carnegie Hall, þar sem hún kemur fram reglulega sem meðlimur Ensemble ACJW, sem staðarlistamaður í Skidmore College í Saratoga Springs, New York og kynnir tónlist, kennir, og spilar fyrir nemendur í Public School 28 í Brooklyn og öðrum grunnskólum New York borgar. Meðal annarra verkefna næsta tónleikaárs má nefna tónleika í Trinity Church á Manhattan sem verður útvarpað beint á netinu, og Konsert fyrir fiðlu og selló eftir Brahms ásamt Adriane Tilanus í Amsterdam.



