Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Pietari Inkinen

Finnski hljómsveitarstjórinn Pietari Inkinen er aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Nýja-Sjálands og aðalgestastjórnandi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Japan. Hann þykir sérlega áhugaverður stjórnandi og hefur þegar stjórnað fjölda alþjóðlegra hljómsveita, m.a. Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig, Staatskapelle Dresden, Fílharmóníuhljómsveit BBC og Fílharmóníuhljómsveitinni í Ísrael.

 

Í fyrra debúteraði hann m.a. á La Scala í Mílanó og með Concertgebouw-hljómsveitinni í Amsterdam, auk þess að koma fram með Birmingham-hljómsveitinni á Englandi. Hann hefur auk þess stjórnað allnokkrum uppfærslum við Finnsku þjóðaróperuna, hljóðritað geisladiska fyrir Naxos, og komið fram með einleikurum á borð við Vadim Repin og Hilary Hahn.

 

Inkinen er afburða fiðluleikari og nam við Tónlistarháskólann í Köln undir leiðsögn Zakhars Bron. Hann hefur leikið einleik með fjölmörgum hljómsveitum á Norðurlöndum og leikur á Bergonzi-fiðlu frá árinu 1732.



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica